
Verslunarmiðstöð í fullum rekstri
Fjörðurinn verslunarmiðstöð
Eitt flóknasta hús landsins — eitt samhæft brunakerfi, engin óþarfa rýming.
Fjörðurinn verslunarmiðstöð í Hafnarfirði er eitt flóknasta mannvirki landsins þegar kemur að fjölbreytileika notkunar. Í húsinu eru verslanir, matsölustaðir, veitingastaðir og bar, hótel, heilsugæsla, íbúðir og bílakjallari – allt undir sama þaki.
Við stóra viðbyggingu miðstöðvarinnar þurfti að uppfæra brunaviðvörunarkerfið og samþætta nýtt kerfi við eldra. Stærsta áskorunin fólst í að leysa úr þáttum sem voru ekki fullhannaðir í upphafi og tryggja að allt kerfið virkaði sem ein heild. Volt sá um hönnun, sölu búnaðar, forritun, yfirlitsmyndir, úttektir og þjónustu eftir afhendingu.
Verkið fór fram á meðan húsið var í fullum rekstri, sem gerði kröfur um vandaða áfangaskiptingu og lausnamiðaða nálgun. Með skýrri svæðaskiptingu og nákvæmri orsaka- og afleiðingastýringu tryggði lausnin stöðugan rekstur án óþarfa rýminga, þrátt fyrir flókið og fjölþætt rekstrarumhverfi.













