Fast eftirlit · ein hönd
Þjónustusamningar um brunaviðvörunarkerfi

Hvað felst í þjónustusamningi?
Við gerum þjónustusamning um viðhald á brunaviðvörunarkerfi og búnaði tengdum því. Samningurinn tryggir að árleg skoðun fari fram á réttum tíma, að kerfið sé prófað og haldið við, og að skýrslur og gögn séu uppfærð.
Við sinnum fjölda slíkra þjónustusamninga fyrir fyrirtæki og stofnanir — frá opinberum aðilum til hótela, skóla og almennra fyrirtækja. Sameiginlegt með þeim öllum er krafa um áreiðanleika og faglega þjónustu.
Kostir fasts samnings
- ✓Árleg skoðun bókuð sjálfkrafa — þú gleymir henni ekki
- ✓Skjalfesting alltaf til staðar fyrir eftirlit og tryggingar
- ✓Þekking á þínu kerfi — hraðari og markvissari þjónusta
- ✓Forgangur og skjót viðbrögð við bilunum
- ✓Samræmdur samningur fyrir bæði brunakerfi og neyðarlýsingu
Samningurinn getur náð yfir
- ✓Brunaviðvörunarkerfi — árleg skoðun og viðhald
- ✓Neyðar- og leiðarlýsingu — árleg skoðun og prófun
- ✓Reyklosun og brunahurðir — staðfesting á virkni
- ✓Bilanaþjónustu með forgangi
- ✓Uppfærslur á yfirlitsmyndum við breytingar
Verkefni Volt
Dæmi um verkefni
Algengar spurningar
Þarf ég þjónustusamning?
Gera skal þjónustusamning um reglubundna skoðun fyrir öll brunaviðvörunarkerfi. Samningurinn tryggir að skoðun fari fram á réttum tíma og að skjalfesting sé alltaf til staðar.
Þjónustið þið kerfi frá öðrum?
Já — við þjónustum flest brunakerfi sem eru í notkun á Íslandi í dag, ekki bara kerfi sem við settum upp sjálf.
Tengt efni
Fáðu ráðgjöf án skuldbindinga
Við förum yfir þarfir húsnæðisins og gerum tilboð sem hentar. Viðurkenndur þjónustuaðili og löggiltur rafverktaki með sérhæfingu í brunavörnum.


