Reyklausar flóttaleiðir
Reyklosun og reyklosunarkerfi

Hvernig reyklosun virkar
Reyklosunarkerfi stýra opnun glugga, reyklúga og annarra losunarpunkta til að losa reyk og hita úr byggingunni. Þetta eykur öryggi fólks, bætir sýnileika á flóttaleiðum og auðveldar slökkviliði aðgengi og störf.
Við samhæfum reyklosun við brunaviðvörunarkerfið með orsaka- og afleiðingastýringum, svo réttir losunarpunktar virkjist sjálfkrafa við eldboð.
Hönnun, uppsetning og þjónusta
Við tökum að okkur val á búnaði, stýringar, uppsetningu og prófanir — og staðfestum virkni reyklosunar í árlegri skoðun. Lausnin er sniðin að gerð og notkun húsnæðis.
Það sem við bjóðum
- ✓Stjórnbúnað fyrir reyklosun
- ✓Samhæfingu við brunaviðvörunarkerfi (Cause & Effect)
- ✓Uppsetningu og gangsetningu
- ✓Staðfestingu á virkni í árlegri skoðun
Algengar spurningar
Af hverju þarf reyklosun?
Reykur veldur oftast mestu hættunni í eldsvoða og getur gert flóttaleiðir ófærar. Reyklosun heldur flóttaleiðum reyklausum, bætir sýnileika og auðveldar slökkviliði störf.
Tengt efni
Fáðu ráðgjöf án skuldbindinga
Við förum yfir þarfir húsnæðisins og gerum tilboð sem hentar. Viðurkenndur þjónustuaðili og löggiltur rafverktaki með sérhæfingu í brunavörnum.
