Árleg skoðun · skoðunarskýrsla
Ársskoðun brunaviðvörunarkerfa

Af hverju árleg skoðun?
Brunaviðvörunarkerfi er öryggisbúnaður sem þarf að prófa reglulega til að tryggja að hann virki þegar mest á reynir. Reglubundin skoðun heldur kerfinu í lagi, dregur úr falsboðum og heldur ábyrgð og vottun í gildi.
Að skoðun lokinni fær húseigandi eða umsjónaraðili formlega skýrslu með niðurstöðum og tillögum að úrbótum ef eitthvað kemur upp — svo einfalt sé að fylgja eftir.
Hvað er prófað?
Við förum yfir stjórnstöð, skynjara, handboða og viðvörunarbúnað, prófum rafhlöður og aflgjafa, skoðum atburðaskrá og staðfestum að stýringar bregðist rétt við. Við skoðum líka tengdan brunavarnabúnað húsnæðis eftir því sem við á.
Innifalið í árlegri skoðun
- ✓Virkniprófun brunaviðvörunarkerfis og endabúnaðar
- ✓Prófun á rafhlöðum, aflgjöfum og boðleiðum
- ✓Staðfesting á virkni rennihurða, reyklosunar og tjalda við eldboð
- ✓Yfirferð á neyðar- og leiðarlýsingu (eftir samningi)
- ✓Formleg skoðunarskýrsla með niðurstöðum og úrbótatillögum
Verkefni Volt
Dæmi um verkefni
Algengar spurningar
Hversu oft þarf að skoða brunaviðvörunarkerfi?
Gera skal þjónustusamning um reglubundna skoðun fyrir öll brunaviðvörunarkerfi, og árleg fagskoðun er grunnurinn. Milli fagskoðana er einföld regluleg eigin-yfirferð einnig mikilvæg — við leiðbeinum um hvað þarf.
Fæ ég skýrslu eftir skoðun?
Já. Eftir hverja skoðun gerum við formlega skoðunarskýrslu með niðurstöðum og tillögum að úrbótum ef þörf er á. Skýrslan nýtist gagnvart eftirliti og tryggingum.
Tengt efni
Fáðu ráðgjöf án skuldbindinga
Við förum yfir þarfir húsnæðisins og gerum tilboð sem hentar. Viðurkenndur þjónustuaðili og löggiltur rafverktaki með sérhæfingu í brunavörnum.


