Engar boranir · engar sýnilegar lagnir
Þráðlaus brunaviðvörunarkerfi

Brunavörn án íhlutunar
Þráðlaus lausn gerir kleift að bæta brunavarnir án umfangsmikilla inngripa í byggingu eða daglega starfsemi. Uppsetning er fljótleg og rask á rekstri í algjöru lágmarki — sérlega mikilvægt í húsum þar sem ekki má raska útliti eða innviðum.
Kerfin bjóða sama öryggi og áreiðanleika og hefðbundin víruð kerfi, og hægt er að sameina þráðlausan og víraðan búnað í einu og sama kerfinu eftir þörfum.
Hvar hentar þráðlaust best?
- ✓Friðuð og söguleg hús þar sem ekki má bora eða leggja sýnilegar lagnir
- ✓Verslanir og rými þar sem fagurfræði skiptir máli
- ✓Húsnæði í fullum rekstri þar sem rask má ekki verða
- ✓Þegar hraða þarf uppsetningu
Það sem við bjóðum
- ✓Hönnun og val á þráðlausri lausn (Hochiki Ekho)
- ✓Uppsetningu með lágmarks raski
- ✓Forritun og gangsetningu
- ✓Úttektir og þjónustu eftir afhendingu
Verkefni Volt
Dæmi um verkefni
Algengar spurningar
Er þráðlaust kerfi jafn öruggt og vírað?
Já. Þráðlaus kerfi bjóða sama öryggi og áreiðanleika og hefðbundin víruð kerfi og eru fullvottuð. Hægt er að blanda saman þráðlausum og víruðum búnaði í sama kerfi.
Tengt efni
Fáðu ráðgjöf án skuldbindinga
Við förum yfir þarfir húsnæðisins og gerum tilboð sem hentar. Viðurkenndur þjónustuaðili og löggiltur rafverktaki með sérhæfingu í brunavörnum.


