Heildarlausn · hönnun til þjónustu
Brunaviðvörunarkerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir

Heildstæð brunavörn frá einum aðila
Brunaviðvörunarkerfi greinir eld á frumstigi og gefur fólki dýrmætar mínútur til að bregðast við og rýma. Við bjóðum heildarlausn — brunastjórnstöð, skynjara, handboða, hljóðgjafa og endabúnað sem vinnur saman sem ein heild.
Við sérhæfum okkur í brunavörnum og þjónustum flest brunakerfi sem eru í notkun á Íslandi í dag. Af því að við sjáum um bæði hönnun, búnað, uppsetningu, forritun og viðhald berum við heildarábyrgð á kerfinu — þú þarft ekki að samræma marga aðila.
Hefðbundin kerfi og vistfangakerfi
Við veljum kerfið eftir stærð, notkun og kröfum húsnæðis. Hefðbundin kerfi (CDX) eru einföld og hagkvæm í smærri mannvirki, en vistfangakerfi (ESP) benda nákvæmlega á hvaða skynjari fór af stað — sem flýtir viðbrögðum og dregur úr falsboðum í stærri og flóknari húsum.
Allur búnaður uppfyllir viðeigandi ÍST EN 54 staðla og við vinnum eftir lögum um brunavarnir.
Það sem við bjóðum
- ✓Hönnun brunakerfa skv. ÍST EN 54
- ✓Sala og uppsetning á vottuðum búnaði (Hochiki)
- ✓Forritun með orsaka- og afleiðingastýringum (Cause & Effect)
- ✓Yfirlitsmyndir og flóttamyndir
- ✓Úttektir, gangsetning og afhending
- ✓Þjónustusamningur og árlegar skoðanir eftir afhendingu
Verkefni Volt
Dæmi um verkefni

Verslunarmiðstöð í fullum rekstri
Fjörðurinn verslunarmiðstöð
Eitt flóknasta hús landsins — eitt samhæft brunakerfi, engin óþarfa rýming.

Nýbygging — engin málamiðlun
Black Sand Hotel
100% rétt frá fyrsta degi — nýbyggt hótel þar sem öryggið mátti ekki bregðast.

Skóli — uppsetning utan skólatíma
Fjölbrautaskóli Garðabæjar
Sjálfstætt brunaviðvörunarkerfi sett upp án þess að trufla skólastarfið.
Algengar spurningar
Þarf húsnæðið mitt brunaviðvörunarkerfi?
Það fer eftir stærð, gerð og notkun hússins og hvaða reglugerð gilti þegar það var byggt. Krafan er algengust í samkomuhúsum, hótelum, skólum, verslunum, skrifstofum og atvinnuhúsnæði. Við metum hvað á við um þitt hús að kostnaðarlausu.
Hvað kostar brunaviðvörunarkerfi?
Verðið ræðst af stærð húsnæðis, gerð kerfis og fjölda skynjara og endabúnaðar. Við gerum tilboð án skuldbindinga eftir að hafa farið yfir þarfir hússins.
Tengt efni
Fáðu ráðgjöf án skuldbindinga
Við förum yfir þarfir húsnæðisins og gerum tilboð sem hentar. Viðurkenndur þjónustuaðili og löggiltur rafverktaki með sérhæfingu í brunavörnum.
