Brunavörn.isBRUNAVÖRN.IS
EN

Viðurkenndur þjónustuaðili brunavarna

Þjónusta

Volt er viðurkenndur þjónustuaðili brunaviðvörunarkerfa og sérhæfir sig í brunavörnum: árlegum skoðunum á brunaviðvörunarkerfum og neyðar- og leiðarlýsingu, þjónustusamningum, forritun, bilunum og viðbótum, hönnun brunakerfa, flóttamyndum og yfirlitsmyndum. Skoðunarskýrsla er gerð eftir hverja skoðun og unnið er eftir lögum um brunavarnir.

Þjónustusamningar

um brunaviðvörunarkerfi og neyðar- og leiðarlýsingu

Árlegar prófanir

á brunaviðvörunarkerfum með skoðunarskýrslu

Árleg skoðun

á neyðar- og flóttalýsingu

Lagfæringar á bilunum

í brunakerfum og biluðum búnaði

Viðbætur

við brunaviðvörunarkerfi þegar húsnæði breytist

Flóttamyndir

sem sýna flóttaleiðir húsnæðis

Yfirlitsmyndir

sem sýna staðsetningu vöktunarbúnaðar

Uppsetning á búnaði

brunaviðvörunarkerfi, neyðarljós og leiðarljós

Val á búnaði

fyrir nýbyggingar og eldra húsnæði

Forritun á kerfum

Forritun á kerfum

Rétt forritun er munurinn á kerfi sem truflar og kerfi sem bjargar.

Við tökum að okkur forritun brunakerfa og brunaviðvörunarkerfa sem við seljum og þjónustum – allt frá minni kerfum upp í stærri og flóknari lausnir í stærri byggingum. Rétt forritun er lykillinn að því að kerfið virki áreiðanlega og að hætta á falsboðum minnki.

Forritunin byggir á brunahönnun og orsaka-/afleiðingalýsingum þar sem við á, með Cause & Effect og I/O stýringum fyrir tengingar við önnur tæknikerfi. Þetta getur falið í sér reykræsingu, loftræstingu, hurðahald/segla, lyftustýringar og önnur öryggistengd viðbrögð. Að lokum framkvæmum við prófanir og gangsetningu á staðnum til að staðfesta að allar stýringar virki rétt.

  • Uppsetning og stillingar á orsaka- og afleiðingastýringum
  • Stýringar fyrir reykræsingu, loftræstingu, hurðir og fleiri útganga
  • Fínstilling til að lágmarka falsboð
  • Uppfærsla á eldri kerfum
Panta þjónustu
Bilanir og viðbætur

Bilanir og viðbætur

Bilun í kerfinu? Í brýnum tilfellum forgangsröðum við útkallinu og mætum hratt.

Við bjóðum skjót viðbrögð við bilunum í brunaviðvörunarkerfum til að tryggja rekstraröryggi og lágmarka truflanir. Viðbragðstími fer eftir alvarleika – í brýnum tilfellum forgangsröðum við útköllum og vinnum hratt að greiningu og úrbótum. Við þjónustum flest brunakerfi sem eru í notkun á Íslandi í dag og leggjum áherslu á faglega og skilvirka þjónustu. Einnig leysum við kröfur um úrbætur á eldvörnum eftir skoðun frá slökkviliðinu.

Við tökum að okkur viðbætur og breytingar þegar húsnæði breytist: bætum við eða færum skynjara, uppfærum svæði/kerfisuppsetningu, forritum nýjan búnað inn og uppfærum yfirlitsmyndir/teikningar.

  • Bilanalestur, greining og viðgerð á brunakerfi
  • Kröfur um úrbætur á eldvörnum frá slökkviliði
  • Viðbætur: nýir skynjarar, I/O, hljóðgjafar, handboðar
  • Flutningur búnaðar við breytt skipulag
  • Úrbætur eftir úttektir slökkviliðs
Panta þjónustu
Árlegar skoðanir

Árlegar skoðanir

Kerfið prófað árlega og skýrslan tilbúin — fyrir þig, eftirlitið og trygginguna.

Við gerum þjónustusamning um viðhald á brunaviðvörunarkerfi og búnaði tengdum þeim og framkvæmum árlegar skoðanir á brunaviðvörunarkerfum. Markmiðið er að tryggja að búnaðurinn virki rétt, að kerfið bregðist eðlilega við boðum og að skjalfesting sé til staðar fyrir rekstur og eftirlit.

Í skoðunum prófum við virkni brunaviðvörunarkerfis og þess búnaðar sem tengist brunavörnum húsnæðis. Að skoðun lokinni fær húseigandi eða umsjónaraðili formlega skýrslu með niðurstöðum og tillögum að úrbótum ef eitthvað kemur upp – þannig verður einfalt að fylgja eftir og halda kerfinu í lagi.

  • Brunaviðvörunarkerfi – skoðunarskýrsla
  • Brunaviðvörunarkerfi – þjónustusamningur um viðhald
  • Rennihurðir – staðfesting á virkni við straumrof og eldboð
  • Reyklosun – staðfesting á virkni
  • Felli-/rimlatjöld – staðfesting á virkni við straumrof og eldboð
  • Leiðar- og neyðarlýsing – staðfesting á yfirferð og prófun
Panta þjónustu
Hönnun brunakerfa

Hönnun brunakerfa

Rétt hönnun frá upphafi sparar dýrar breytingar síðar.

Volt er með hönnunarréttindi fyrir boðveitur, lýsingarkerfi, rafkerfi og raflagnir (315 A). Við bjóðum faglega hönnun brunakerfa og brunaviðvörunarkerfa með áherslu á rétta staðsetningu búnaðar, hagkvæma útfærslu og áreiðanleika í rekstri. Með því að koma snemma að verkefni má oft spara kostnað og forðast dýrar breytingar síðar.

Við vinnum í samræmi við kröfur og staðla, þar á meðal ÍST EN 54 þar sem við á, og í samstarfi við verkkaupa/hönnuði þegar sérhæfð brunahönnun liggur til grundvallar. Hönnunin tekur mið af notkun húsnæðis, áhættumati og rekstrarþörfum – þannig að lausnin henti bæði í dag og til framtíðar.

  • Val á kerfi og búnaði miðað við rými og notkun
  • Tillaga að staðsetningu skynjara og svæðaskiptingu
  • Undirbúningur fyrir orsaka- og afleiðingastýringar
  • Samhæfing við loftræstingu, reykræsingu og brunahurðir
  • Skil á hönnunargögnum
Panta þjónustu
Neyðar- og leiðarlýsing

Neyðar- og leiðarlýsing

Neyðar- og leiðarlýsing sem vísar leiðina út — skoðuð árlega og alltaf í lagi.

Við höfum mikla þekkingu á neyðar- og leiðarlýsingu og bjóðum árlega skoðun á neyðar- og flóttalýsingu, uppsetningu á nýjum búnaði og endurnýjun eða viðhald á eldri kerfum. Að skoðun lokinni er gerð skoðunarskýrsla með niðurstöðum.

Við gerum einnig þjónustusamninga um neyðar- og leiðarlýsingu, rétt eins og um brunaviðvörunarkerfi — þannig er árleg skoðun, prófun og viðhald alltaf í föstum farvegi og skjalfestingin til staðar fyrir eftirlit.

  • Árleg skoðun á neyðar- og flóttalýsingu
  • Þjónustusamningur um neyðar- og leiðarlýsingu
  • Uppsetning á neyðarljósum og leiðarljósum
  • Lagfæringar á biluðum búnaði
  • Endurnýjun og viðhald eldri kerfa
Panta þjónustu
Teiknivinna

Teiknivinna

Í neyð þurfa allir að rata — réttar teikningar geta skipt sköpum.

Við sjáum um teiknivinnu brunavarna – þar á meðal yfirlitsmyndir fyrir brunastjórnstöðvar og flóttamyndir sem sýna flóttaleiðir og staðsetningu slökkvibúnaðar. Skýrar og réttar teikningar skipta miklu máli í neyð, því þær hjálpa bæði starfsfólki og slökkviliði að átta sig fljótt á aðstæðum.

Við uppfærum einnig teikningar og yfirlitsmyndir þegar breytingar verða á húsnæði eða brunakerfi, þannig að gögn endurspegli ávallt raunverulegt ástand. Þetta einfaldar rekstur, viðhald og eftirlit – og tryggir að kerfið sé skráð eins og það er í raun.

  • Yfirlitsmynd fyrir brunakerfi
  • Flóttamyndir: flóttaleiðir, slökkvibúnaður, söfnunarstaður
  • Uppfærslur við breytingar á rýmum eða búnaði
  • Skil á rafrænum gögnum
  • Samræming við kerfisuppsetningu og forritun
Panta þjónustu