VÖRUR

Vandaðar brunavarnalausnir fyrir mannvirki af öllum stærðum. Volt býður heildstætt vöruúrval í brunaviðvörunum, reykskynjun, rýmingu og neyðarlýsingu – valið með áherslu á öryggi, áreiðanleika og langan líftíma

Brunaviðvörunarkerfi og endabúnaður

Brunaviðvörunarkerfi og endabúnaður

Við veitum heildstæðar lausnir í brunaviðvörunarkerfum – allt frá brunastjórnstöðvum til skynjara, handboða og annars endabúnaðar. Lausnirnar eru sniðnar að bæði einföldum og flóknum mannvirkjum og valdar með áherslu á hámarksöryggi, áreiðanleika og stöðugan rekstur.

Kerfin byggja á nútímalegri og prófaðri tækni sem dregur verulega úr líkum á falsboðum og tryggir skýra, örugga og skilvirka viðbragðskeðju við brunaboð. Í boði eru bæði hefðbundin brunaviðvörunarkerfi og addressuð vistfangakerfi, allt eftir umfangi, kröfum og eðli hvers verkefnis.

Reyksogskerfi

Reyksogskerfi eru hönnuð fyrir rými þar sem gerðar eru auknar kröfur um snemmbúna skynjun eða þar sem aðgengi að hefðbundnum reykskynjurum er takmarkað.

Kerfin soga loft úr rýminu og greina reykagnir á mjög frumstigi – oft mun fyrr en hefðbundnir skynjarar. Þetta gerir kleift að grípa til viðeigandi aðgerða áður en brunahætta þróast í alvarlegt ástand.

Lausnin hentar sérstaklega vel fyrir tölvurými, gagnaver, lágereyma, vöruhús og önnur viðkvæm rými þar sem snemmbúin viðvörun getur skipt sköpum.

Þráðlaus brunaviðvörunarkerfi

Þráðlaus brunaviðvörunarkerfi

Þráðlaus brunaviðvörunarkerfi eru hentug þar sem lagnaleiðir eru erfiðar, óhagkvæmar eða óæskilegar, til dæmis í friðuðum byggingum, sögulegum mannvirkjum eða húsnæði í fullum rekstri.

Lausnin gerir kleift að bæta brunavarnir án umfangsmikilla inngripa í byggingu eða daglega starfsemi. Uppsetning er fljótleg og rask á rekstri í algjöru lágmarki.

Kerfin bjóða upp á sama öryggi og áreiðanleika og hefðbundin víruð kerfi og hægt er að sameina þráðlausan og víraðan búnað í einu og sama kerfinu eftir þörfum.

Þráðlaus brunaviðvörunarkerfi

Hljóð- og kallkerfi

Í neyðartilfellum skipta skýr, áreiðanleg og skilmerkileg samskipti sköpum.

Við bjóðum upp á vottuð talvarpskerfi sem leiðbeina fólki með skýru mæltu tali og styðja við örugga, skipulagða og markvissa rýmingu.

Einnig bjóðum við upp á neyðarsímakerfi (EVC) fyrir hreyfihamlaða og slökkvilið. Lausnirnar tryggja örugg og áreiðanleg samskipti þegar mest á reynir.

Reyklosunarbúnaður

Reyklosunarbúnaður

Reykur er oft stærsta hættan í eldsvoða og getur á skömmum tíma gert flóttaleiðir ófærar.

Við bjóðum upp á stjórnbúnað og heildarlausnir fyrir reyklosun sem miða að því að halda flóttaleiðum reyklausum og bæta aðstæður við rýmingu. Kerfin stýra opnun glugga, reyklúga og annarra losunarpunkta til að losa reyk og hita úr byggingunni.

Þetta eykur öryggi fólks, bætir sýnileika og auðveldar slökkviliði aðgengi og störf.

Neyðarljós

Neyðarlýsingarkerfi

Neyðarlýsing er ómissandi hluti brunavarna og tryggir að flóttaleiðir og útgangar séu skýrt merktir og vel lýstir þegar rafmagn fer af.

Við bjóðum upp á addressuð LED neyðarlýsingarkerfi með sjálfvirku prófunar- og eftirlitskerfi. Lausnin einfaldar viðhald, dregur úr rekstrarkostnaði og tryggir að kerfið sé ávallt í fullri rekstrarhæfni.

Allur búnaður er vottaður samkvæmt gildandi stöðlum og hentar jafnt fyrir nýbyggingar sem eldri mannvirki.

Hafa samband

  • Volt ehf
  • Sími: 559 1505
  • kt: 480513-1340
  • Vsk nr: 113842